21.9.2007 | 10:31
Skafa
Ég þurfti að skafa af bílnum í morgun, ekki sátt. Og fara með kuldabuxur á leikskólann fyrir Rakel. Á eftir ætlum við í leiðangur, það þarf að kaupa kuldaskó og lambhúshettu á barnið.
'Mér er sveitt' sagði rauðhaus þar sem hún lá afvelta og dúðuð í stigaganginum heima og beið eftir farinu okkar.
'Hún er ekki reið' tilkynnti hún mömmu sinni þegar hún koma að sækja okkur og átti þá við gribbuna mig.
'Þú ert í þykjustunni vond' sagði hún við mömmu sína í um kvöldið í stað þess að bjóða henni góða nótt. Hún skildi ekki af hverju við hlógum og ítrekaði beiðnina.
Helgin framundan. Leti hefur plagað mig þessa viku þegar kemur að lærdómi. Eins mikil leti og ég get leyft mér. Fór í fýlu við norskuna og neitaði að lesa hana. Las í staðinn sjónvarpsdagsskrána þar sem ég er bókalaus í augnablikinu. Féllust hendur yfir nýjasta verkefninu í forna málinu og var næstum farin að grenja yfir því á miðvikudagskvöldi. Fékk mér kók og súkkulaði í mótmælaskyni við illgjörn verkefni, eitthvað sem ég er ekki vön að gera á virku kvöldi. Klambraði einhverju saman á fimmtudagsmorgni en hrýs hugur við því að þurfa að skila þessu af mér.
Hnéð á mér er í uppreisn. Hrund hefur smitað mig af hnésýki og hefur því fengið illt augnaráð frá mér alla vikuna (hún hefur samt ekkert tekið eftir því, brosir bara til mín, huh). Hrund var að drepast í hnénu fyrst eftir að við byrjuðum í ræktinni en það lagaðist eftir smá tíma. Mitt bæklaða hné (sem hefur áður gefið sig og þurfti að krukka í það á skurðborði, oj barasta) hefur ákveðið að vera ekki í lagi lengur og verða aftur bilað. Það gefur sig reglulega og ég hrasa og skjögra í skólanum eins og ég hafi fengið mér eitthvað sterkara en kaffi í morgunmat.
Oddný og Viktor ætla með okkur í keilu á morgun (Viktor er barnið hennar Oddnýjar einu sinni í mánuði, ekki dularfulli kærastinn sem enginn vissi um). Það verður frábært, fórum einhvern tíma í vor og Rakel rústaði okkur. Mér finnst keiluskór svo flottir. Vinkona mín stal einu sinni svona skóm þegar við fórum í keilu. Ég hélt mig hins vegar á beinu brautinni og skilaði skónum eftir notkun. Það var svo mikil táfýla af þeim.
Ætla í spænskutíma. Ritlist. Þið viljið ekki vita hvað ég hef um hann að segja í augnablikinu.
Díana Rós, æst í skapi (sem ég er ekki alltaf, sama hvað Hrund segir, það er ekki það sama að vera æstur og ekki-rólegur).
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:33 | Facebook
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það virðist vera landlæg lægð í gangi, búin að vera að strögla í sömu asskotans letinni.
En gaman að geta fylgst aðeins með ykkur, þú kannt greinilega ennþá að skrifa skemmtilega (ekki það að ég hafi efast um það)
Arna 21.9.2007 kl. 11:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.