Jæja...

 Við hjónakyrnurnar tókum þá ákvörðun í gærkvöldi að verða hipp og kúl og byrja að blogga eins og allir hinir. Reyndar var ég andvaka eða hálfsofandi þegar ég fékk þessa hugdettu og spurði konu mína sem líka var andvaka eða hálfsofandi (guð hvað við erum samstíga og samhentar) hvernig henni litist á. Henni leist vel á og því sit ég hér og er alveg að fara að vinna en vildi deila þessum gleðifréttum með ykkur fyrst.

Við skulum svo vona að einhver lesi um líf okkar á þessari síðu. Kannski best að láta fólk vita af henni ... Allavega slæ ég tvær flugur í einu höggi, fæ útrás fyrir skrifþörf mína og leyfi ykkur að fylgjast með því hvernig tvær mömmur í sambúð ala upp dóttur sína og barnföðurins.

 Barnið er einmitt í sumarfríi hjá pabba sínum núna svo það er kannski svolítið glatað að byrja með þessu síðu akkúrat núna. Og þó. Við erum ekki allar alltaf saman en fjölskylda þrátt fyrir það svo skrifin eiga alltaf jafn mikinn rétt á sér.

En núna er samviskan við það að kæfa mig svo ég ætla að snúa mér aftur að vinnunni. Hasta más tarde, Dr.

                                                                                                                     

                                                                                                                                 

 

 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Velkomnar í bloggheima...og ég notaði fyrst hjónakyrnur um Hönnu og Stínu...er ekki kyrna kvenkynið af korn???

Múmmsan/Tengsan

she 28.8.2007 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband