Búin

Kláraði spænskuritgerð í gær.

Loksins.

Þið getið ekki ímyndað ykkur léttinn.

Núna get ég einbeitt mér aðeins að þessari BA-ritgerð.

Það er helgi og sólin skín í gegnum gluggann. Unginn situr næst mér í sófanum, við erum báðar mettar af hafragraut svona snemma morguns.

Hugur minn hvarflar til sumarsins. Ég vona að það verði jafn gott og í fyrra.

Mig langar að flytja til Svíþjóðar.

Ég vil ekki vera hjá Kaupþingi núna eftir að SPRON fór á hausinn. Þetta er næstum sama drullumallið núorðið en ekki alveg.

Vonandi röltir Bjarndís yfir til okkar með vagninn og snúlluna á eftir.

Ef það er eitthvað sem ég hef lært í lífinu þá er það það að oft gerir maður sér ákveðnar hugmyndir um hvernig eitthvað á að vera eða verða, jafn vel dreymir um það. Það verður sjaldan alveg eins og maður hafðir ímyndað sér það. En það þýðir ekki að allt sé ónýtt, fullkomin stjórn á ekki að vera það eina sem þú sættir þig við. Hlutirnir eins og þeir verða, burtséð frá þínum hugmyndum um þá, geta líka verið góðir. Ég er að æfa mig í því að sætta mig við orðinn hlut þótt ég hefði viljað hafa hann eitthvað öðruvísi. Annars verð ég aldrei hamingjusöm.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá! Búin með ritgerðina?!?! Til hamingju! Þú ert nú meiri dugnaðarsnillinn :)

Og úff hvað ég hlakka til sumarsins... Hef á tilfinningunni að það verði ofsalega gott! :)

Gyða 4.4.2009 kl. 14:17

2 identicon

TIL HAMINGJU MEÐ RITGERÐARLOK  fullkomin stjór held ég að yrði agalega leiðinleg, þá myndi aldrei neitt óvænt og ánægjulegt gerast

Oddný Björg Rafnsdóttir 5.4.2009 kl. 20:25

3 identicon

Hey hey! Llasha er að koma til landsins! http://www.listahatid.is/listahatid-2009/dagskra/nr/1010/eventID/5470 Vamos! :)

 Ég er sammála þér með SPRON, ég sakna hans svo mikið. Ég átti ekki von á því að það væri hægt að sakna banka svona mikið.

Svo hvet ég ykkur til þess að flytja til Stokkhólms 2010.

Tinna Rós 6.4.2009 kl. 00:51

4 identicon

Tinna: Ég myndi nú ekki velja Stokkhólm en við erum alveg með Svíþjóð bak við eyrað svona ef allt heldur áfram að fara til fjandans.

Ég er sko búin að redda mér miða á Lhösu, sjitt hvað ég hlakka til.

Oddný: Já, fullkomin stjórn væri leiðinleg til lengdar. En að ná henni eitt andratak, men oh men hvað það er mikið kikk ...

Ætlaru svo ekki að koma þér í bæinn eina helgi áður en Katla fer manneskja?

dr 6.4.2009 kl. 09:04

5 identicon

ég veit kikkið en...

varðandi bæjarferð þá kem ég ekki áður en katla fer... hata peninga þeir flækja líf mitt nú á dögum en kem nú pottþétt einhvern tíman á næstu mánuðum.... sakana ykkar allra of mikið

Oddný 6.4.2009 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband