Óður til móður og húsmóður með athyglisbrest

Þið sem rekið heimili þekkið þetta.

Dagurinn var nokkuð kreisí. Svaka stress heim úr skóla og leikskóla með strætó að ná í eldri dömuna. Hjálpað til við lærdóm með annarri og matað með hinni. Sturta dömuna, koma henni í spariföt, keyra konuna í skólann, keyra um hverfið eins og vitleysingur í leit að afmælisveislu, litla barnið búið að kúka upp að eyrum og gargandi og gólandi. Ok, smá pása í heimsókn hjá mömmu á meðan daman er í afmæli og litla barnið sefur í 20 mín. Svo hefst leikurinn aftur. Ná í dömuna, heim með börnin, bursta tvö sett af tönnum, í náttföt, leggja yngri, lesa fyrir eldri. Ah. Búin.

Djóóóók.

Núna byrjar ballið. Taka til föt morgundagsins fyrir eldri. Það má ekkert tefja fyrir barninu sem vaknar og gerir alla hluti í slow motion fyrir átta. Setja óhrein föt í óheina tauið, taka upp úr bleiutösku yngri sem skeit upp á bak rétt fyrir heimsókn hjá ömmu, taka til inni á baðherbergi eftir brjálæðið sem átti sér stað fyrir korteri. Rek augun í óhreinar bleiur í baðkarinu og minni sjálfa mig á að þvo þær rétt strax og moppa svo gólfið á leiðinni út.

Fer inn í eldhús þar sem allt er í rúst eftir lærdóm, át og innpökkun á gjöf fyrr um daginn. Tek til á eldhúsborði, tíni upp leikföng, ákveð að uppvaskið sé smotterí sem má bíða til morguns, fer inn á bað með eldhúsrúllur til að koma þeim fyrir upp á skáp. Man þá eftir bleiunum og skola úr. Fer svo að vesenast við að finna góðan stað fyrir moppuna svo það sé auðvelt að grípa í hana. 

Fer að undirbúa nestisgerð. Fer og næ í nestibox í töskuna hjá eldri, set um leið íþróttadót ofan í, tek til hreinar bleiur fyrir leikskólann hjá yngri, geri útiföt tilbúin fyrir morgundaginn og fer aftur inn í eldhús. Gleymi nestiboxi frammi. Tek eftir perli sem ég var búin að lofa að strauja. Gramsa lengi í skáp eftir straujárni, tek aðeins til í skápnum, finn ljósaperur og skoða og máta í ljósið inn í eldhúsi þar sem ein pera er sprungin. Fer aftur að leita að straujárni og finn þá sílikonsprey. Ákveð að spreyja nýju kuldaskóna hennar Rakelar. Geri það tilbúið, finn straujárn og sting í samband. Spreyja á meðan járn hitnar og minni sjálfa mig á að merkja skóna. Já og kerruna sem ég geymi í leikskólanum hjá yngri á daginn. Strauja perl. Man aftur eftir nestisboxinu sem ég gleymdi á gólfinu frammi og næ í það. Geri nesti fyrir mig og eldri. Fer að hugsa um kvöldmatinn á morgun. Nýjar kartöflur og heimagerðar kjötbollur. Besta að ná í hakk úr frysti. Átti ég ekki annars gufusoðinn kjúkling og fisk fyrir Röskvu? Tek allt út úr frysti, finn það sem ég leita að og raða inn í aftur.

Fer inn í stofu að ná í merkimiða. Fer að tína saman leikföng og blaðarifrildi eftir Röskvu. Brýt saman bleiur og geng frá. Man eftir merkimiðum, finn þá og merki. Næ í mjaltagræjurnar. Merki kerru. Ákveð að vaska aðeins upp. Verð að hætta því Röskva finnur ekki snuðið sitt og er í tráma inni í rúmi.

Ákveð að blogga og drekka vatn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sjæs! Þú ert greinilega svona ofurkona.

Gyða 15.9.2010 kl. 21:22

2 identicon

Alls ekki. Geri bara það nauðsynlegasta og einstöku sinnum aðeins meira. Bara brjálað að gera.

dr 15.9.2010 kl. 23:18

3 identicon

Já það getur sko verið mál að vera með tvö börn sem þarf að koma út á morgnana og sjá um heimili eftir skóla og vinnu. Og það munar trúlega um það þegar Hrund er ekki heima og þú þarft að gera þetta allt saman ein. En þið eruð ungar og orkumiklar með orkuríkar dætur og þið eruð frábærar mömmur báðar tvær. En með tvo orma gerir maður nú lítið annað en að snúast í kringum þá.  Og þegar ró er komin á er engin orka eftir. En mér finnst gott að þú bloggir aftur...það líður allt of langt á milli. Luv ya. She

Silla 16.9.2010 kl. 00:16

4 identicon

Superwoman!

Rósa 16.9.2010 kl. 10:03

5 identicon

Málið er að ég held ég væri miklu fljótari að þessu öllu ef ég væri ekki með svona mikinn athyglisbrest. Ég er sífellt að gera skrilljón hluti í einu í stað þess að klára þetta allra nauðsynlegast og eiga svo fullt af tíma til að dúlla mér við hitt.

Horfði svo á mynd og át popp með Hrund. Bara kósý.

En já Silla, ég verð að blogga oftar.

dr 16.9.2010 kl. 10:24

6 identicon

Jiii hvað ég er spennt að eignast fleiri börn *kaldhæðni* ;)

Helga Björg 16.9.2010 kl. 15:30

7 identicon

Váááá.... hvað ég kannast vel við þetta!!!!

Sóley 16.9.2010 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband