Haust

Já, mér finnst haustið byrja um leið og skólinn. Það er hins vegar sumarveður sem er mjög ljúft.

Laugardagurinn var svo sannarlega dekurdagur. Hrund kallaði á mig í áðurnefnt bað um morguninn og lét ég mig sökkva í baðið fullt af froðu og vöðvaslakandi baðsalti. Ég tók ipodvögguna með inn á bað og hlustaði á tónlist, Hrund hafði líka kveikt á kertum og svo var ég með bók við höndina. Eftir gott 'hugs' og dekur við sjálfa mig kom ég mér upp úr og inn í eldhús þar sem Hrund var búin að bera á borð safa og nýbökuð, gróf rúnstykki með tilheyrandi áleggi og bláberjamúffu í eftirrétt. Eftir matinn skelltum við okkur í Kringluna og keyptum heilan helling. Við keyptum okkur sitthvort skóparið en auk þess keypti ég mér veski og ermar og Hrund veski og úlpu. Við keyptum líka geggjaða skó á Rakel, úlpu, tvær hnepptar peysur og gallabuxur. Fötin á hana voru keypt í Zöru sem er með fallegustu barnafötin að mínu mati. Þar er hægt að finna föt á stelpur í öðrum litum en bleikum (til dæmis sinnepsgulum og brúnum eins og peysurnar sem við keyptum) og flestar flíkurnar eru alveg lausar við einhverjar áletranir.

Eftir að hafa eytt öllum þessum pening bauð Hrund mér út að borða á Pottinn og Pönnuna þar sem við fengum okkur súpu og salatbar í forrétt og kjúkling í aðalrétt. Því næst fórum við í bíó að sjá WallE sem er ótrúlega flott, vönduð og skemmtileg teiknimynd (og Gyða, ég segi eins og Kristín, ég er alveg til í sjá hana aftur ef þig vantar einhvern til að fara með þér ). Kvöldið enduðum við svo uppi í sófa með gómsætan jógúrtís. Ótrúlega ljúft. Sunnudagurinn fór bara í eitthvað knús og afslöppun hjá okkur kyrnunum og Rakelin kom svo heim að verða sex. Frank, gamall fjölskylduvinur sem kom hingað til að vera við frumsýningu Sveitabrúðkaups, bauð fullt af fólki út að borða á Holtinu um kvöldið og fór ég fyrir hönd minnar litlu fjölskyldu. Það var mjög gaman að spjalla við ættmennin og hina og pæla í matnum og framsetningu hans. Allir réttir eins og sýnishorn af einhverju og misgóðir þótt allir ættu þeir það sameiginlegt að vera ótrúlega dýrir. Ég hef nú oft fengið betri mat en það er alltaf gaman að láta bjóða sér út að borða og þurfa ekkert að elda, skammta sér eða vaska upp.

Svo byrjaði skólinn í dag. Ég er nú ekkert svaka spennt fyrir spænskunámskeiðunum sem ég er að fara að taka en held samt að það hafi verið rétt ákvörðun hjá mér að taka spænsku sem aukafag, mig langar svo að öðlast einhverja færni í málinu. 

Ég held mér lítist ágætlega á lífið í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja, nú get ég farið að kommenta.

Það er gott að þú skyldir sakna mín á meðan ég var úti, þó að það væri ekki nema bara fyrir kommentin:)

Ok. Man ekkert hvað ég ætlaði að segja. Hm

Hlíf 2.9.2008 kl. 11:23

2 identicon

Ég saknaði nú líka félagsskapar þíns svona yfir höfuð. Finnst verst að það er mjög óljóst hvort ég komist eitthvað í afró, stundaskráin hennar Hrundar er ekki alveg komin á hreint. Ég mun kannaski komast einu sinni í viku eða bara ekkert.

Þannig að. Við verðum bara að hittast við önnur tækifæri.

dr 2.9.2008 kl. 14:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Díana Rós og Hrund og dæturnar Rakel og Röskva
Díana Rós og Hrund og dæturnar Rakel og Röskva
Hér skráir Díana Rós fyrir hönd litlu fjölskyldunnar hinar ýmsu athafnir hennar og deilir með ykkur sögum úr stelpukotinu þeirra í Skipasundi

Myndaalbúm

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 56514

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband