Sjitt

Fór á klósettið heima að pissa. Sem ég er að standa upp til að girða mig þá hrekkur klósettsetan af festingunni öðru megin og ég hendist til hliðar. Náði rétt svo að koma í veg fyrir að ég rotaði mig á vaskinum.

Ég gat ekki lagað setuna og hugsaði með mér að ég myndi fá Hrund með mér í það eftir vinnu.

Svona hálftíma, vatni og appelsínusafa seinna ákvað ég að hoppa á klósettið og pissa áður en ég hoppaði út í strætó. Ég hlammaði mér á klósettsetuna, löngu búin að gleyma að hún var aðeins föst öðrum megin. Setan hrökk af hinni festingunni og skutlaðist af klósettinu. Þar sem ég sat á setunni skutlaðist ég af með henni. Ég rétt svo náði að koma í veg fyrir að setan skylli í gólfið og brotnaði. Ég er ekki slösuð.

Ég get svo svarið það að mér líður ekki vel. Er búin að vera með smá hálsbólgu síðan í gær og hausverk. Ég vona að ég sé bara svona þreytt en ekki að verða lasin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heldurðu að klósettsetan hafi smitað þig af hálsbólgunni? :D Maður er greinilega ekki óhultur jafnvel á klósettinu heima hjá sér. Ég fer varlega hér eftir og athuga festingarnar áður en ég sest! hahaha

Rósa 21.9.2008 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband