23.1.2009 | 10:19
.
Það er svo merkilegt með lífið að það gefur manni stundum ekkert færi á að lifa því, ekkert rými til þess að njóta þess. Undanfarna daga hef ég verið að einbeita mér að því að tóra, að hafa það af, að gefast ekki upp og missa ekki endanlega sjónar á bjartsýninni og voninni sem er okkur öllum svo lífsnauðsynleg.
Lífið tekur ekkert tillit til aðstæðna, spyr ekki að tímasetningu, gefur manni ekki tíma til þess að undirbúa sig. Og daglegt líf í kringum mann heldur áfram þótt maður sjálfur komist ekki úr sporunum.
Ef það er eitthvað sem ég mun aldrei jafna mig á þá er það hversu ósanngjarnt lífið er. Stundum svo mikið að ég verð öskuill.
Stundum þannig að ég hef ekki orku til neins. Ekki til að fara í skólann, ekki til að læra, ekki til að hugsa um sjálfa mig eða fjölskylduna. Og alls ekki til að blogga.
Stundum er svo sárt að draga andann.
Ég ætla út að ganga á eftir. Verð að koma mér í almennilega hreyfingu aftur. Get ekki hugsað mér að hoppa í takt við lífsglatt fólk í Baðhúsinu. Vil frekar ganga í frostinu með hús og tré eins og skjólveggi sitt hvoru megin við mig. Með tónlistina í eyrunum svo hátt stillta að mér verði ómögulegt að heyra eigin hugsanir.
Ég myndi allavega segja að þetta væri mjög heilsusamleg leið til þess að reyna að hætta að finna til.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svo kemur sólin og blóm í haga!! Þú verður að muna það stelpan mín!
inam 23.1.2009 kl. 17:50
Ef ég væri hjá þér myndi ég faðma þig, kreista vel og lengi. Fara úr í sjoppu taka spólu, panta kannski pizzu, taka sængurnar fram í stofu og klessa þér niður í sófann. Seinna myndi ég reyna að hjálpa þér að rísa upp og takast á við daginn...... Þetta gerðum við þá en núna er svo langt á milli, of langt og svo lítið sem ég get gert til að hjálpa.
Mundu bara að þú átt alltaf eyra
Oddný 25.1.2009 kl. 23:03
Búhú ... Sakna þín mest Odda podda. Vantar þig.
dr 26.1.2009 kl. 20:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.