Lús í höfði

Um áttaleytið í gær hvarf Hrund í nokkuð langa stund. Ég heimtaði að fá að vita hvað hún hefði eiginlega verið að gera þegar hún kom til baka. Jú, hún hafði verið að kemba lús úr höfði sér.

Alien

Við vorum ekki glaðar. Aldrei fékk neitt af okkur systkinunum lús og þótt við Hrund höfum eytt óteljandi dögum við vinnu á leikskóla og Rakel við leik í honum þá höfum við sloppið.

Mig byrjaði samstundis að klæja.

Hrund fór og keypti lúsasjampó og kembdi svo á mér hausinn. Ég leit vægast sagt skrautlega út að því loknu, hárið leit út eins og það væri á leiðinni af hausnum. Og það er ekki gott að kemba í gegnum hnausþykkar krullur. En hárið var alsaklaust af lúsinni. Rifum barnið líka á fætur og kembdum það hálfsofandi og volandi. Ekkert. Settum bursta, höfuðföt og úlpuna hennar Hrundar og fötin sem ég var í um daginn í poka og út í frostið. Já, fötin mín. Þar sem þau lágu í rúminu sem Hrund hafði legið í með lús og mér leið betur að vita til þess að fötin væru fryst áður en ég færi í þau aftur. Tókum af rúminu og settum á suðu og settum hreint koddaver hjá Rakel.

Maður á nú ekki að þurfa annað en að frysta höfuðföt og bursta en látið mig bara vita næst þegar þið fáið lús hvernig þið tækluðuð þetta. Hvort ykkur hafi langað til að leggjast í rúmföt þar sem grey manneskja með lús svaf næturnar á undan.

Svo var það símatalið. Til Gyðu auðvitað. Hún er eiginleg hluti af þessari fjölskyldu nátla og var hér á bæði mánudag og í gær og knúsaði Rakel í bak og fyrir og við vorum/erum ekki vissar um hvort hún væri smituð (þ.e. Rakel). Mér leið örugglega svipað og manneskju sem kemst að því að hún er með kynsjúkdóm og þarf að segja hjásvæfunni það. Baðst afsökunar á því að trufla hana úti á lífinu en hvort hún myndi nú ekki kemba sig þegar hún kæmi heim. Nei, snoðun er engin lausn. Já, ok, þú vilt ekki tala meira um lús, já, bara sorry elsku vinkona með ótrúlega síða hárið.

Wizard Stuð

Ætlaði að skrifa eitthvað ótrúlega fyndið um Rakel en man ekkert hvað það var. Skrifa það seinna.

Jú, nú man ég það. Ég bjó til sjeik handa okkur í gær, smá ís, mjólk og fullt af berjum og banana. Reyndar dó blandarinn í miðjum hræringi. Úps. En ég kom þessu í glös og þetta var ljúffengt. Rakel hins vegar gretti sig þegar ég sagði henni í kvöldmatnum að það væri sjeik í eftirrétt og ég sagði henni að það væri enginn skylda að borða hann. Hún fylgdist með gerð sjeiksins og var nokkuð hissa þegar ég hellti í glas handa henni líka.

'Á ég að fá svona líka'

'Ef þú vilt, en þú þarft ekki að borða þetta. Engin skylda að borða eftirrétt'

'En ég vil'

'Gjörðu þá svo vel. Mundu svo bara næst að fúlsa ekki við einhverju sem þú hefur ekki smakkað'

'Ég hélt bara að þetta væri kennaratyggjó'

'Kennaratyggjó?'

'Já, ég hélt að sjeik væri bleikt kennaratyggjó og ég vildi ekki þannig'

 

Bleikt kennaratyggjó.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

oojjjjjjjjjjjjjjjjjj nú er ég glöð að búa á ak, í hæfilegri fjarlægð frá ykkur lúsablesunum!!!!!!

En vinkona !  Hvenær ertu þú heima svo hægt sé að ná af þér tali ????? Eða ertu búin að seigja mér upp sem vinkonu??? Það þætti mér verra!!!!

Odda Podda 5.2.2009 kl. 11:56

2 identicon

Manneskjan sem ég var með á kaffihúsinu hélt að þetta væri svona upplogið planað símtal til að losna í burtu... hahaha!

kennaratyggjó já... hefurðu kannski e-n tíman áður reynt að gefa barninu bleikt kennaratyggjó að borða?? hahah! Þessi rauðhaus :)

Gyða 5.2.2009 kl. 12:21

3 identicon

Úff það er algjört helvíti að losna við þessa lús.  Gunnar litli bróðir fékk hana einu sinni, og það kom í ljós að það er ekkert grín að drepa þessi kvikindi.  Tekur einhverja klukkutíma að drekkja/sjóða hana í þvotti ef ég man rétt.  Og fleirri vikur að kæfa hana (setja sængur, kodda og rúmföt í poka og loka).  Þori ekki alveg að fara með þetta samt, getur verið að ég sé að magna þetta upp í minningunni hehe, en ég myndi skoða vel hvað þarf til.

Kv. Arna

Arna 5.2.2009 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband