Úff

Netið er nú meiri kellingin. Liggur á upplýsingum og drefir þeim til allra sem vilja þótt sá sem upplýsingarnar varða hafi aldrei gefið leyfi til þess. Engu hægt að eyða út, allt er þarna að eilífu og elur á forvitni fólks sem ekki er lengur eðlilega forvitið heldur jaðrar njósnastarfsemin við pervisma. Sjúkleg árátta er þetta að vita allt um alla. Lenti í því um daginn á spjalli sem ég er stundum á að manneskja skrifar þráð og spyr mig spurningar. Ég svara í einkaskilaboði en einhver önnur siðblind manneskja svarar fyrir mig inni á þræðinum og lætur í té upplýsingar sem ég vildi alls ekki að allir gætu lesið. Hvur andskotinn er að fólki.

Og ég fer ekki ofan af því að Fésið elur á þessari vitleysu. Mér finnst það ógeðslegt. Spjallið sem ég er á er að minnsta kosti nafnlaust.

Mamma fór á námskeið í fyrradag um öryggi netsins eða eitthva álíka og snéri af því með velgju og nojaðri en allt. Ég bað hana vinsamlega að segja mér ekki hvað hefði komið fram þarna, ég vissi alveg nógu vel hversu óöruggt netið væri. Hún sagði mér samt einhver atriði sem fram komu, varð að deila hryllingnum með einhverjum. Úff.

Besta barnið er hjá pabba sínum og unir þar líklega vel við sitt. Vinnufjölskyldan eina sanna kom í heimsók á föstudag og snæddi kjúkling og drukkum við mojito. Spiluðum og spjölluðum og þótti ósköp vænt hvor um aðra. Fengum Hrund og Anton í smá heimsókn en svo fór Hrund niður í bæ og hitt fólkið heim ekki löngu seinna. Ég gekk frá og vaskaði upp og horfði svo aðeins á Friends. Mér finnst mjög vont að vera ein heima og sef alltaf mjög illa. Er eins og mamma að hlusta eftir barninu sínu og var því mjög fegin að Hrund rúllaði inni rétt eftir að ég var komin upp í rúm.

Hrund svaf svo allan laugardaginn eins og henni einni er lagið en ég, mamma og litla sys fórum á búðarrölt og ótrúlegt en satt fann ég æðislegan kjól og flöskugræna skó. Vel brúklegt á árshátíð eftir viku og svo bara endalaust eftir það. Kjólllinn var nær allur í boði mömmu og systirin fann á mig bæði flíkina og benti mér á skóbúðina með skónum. Bestar í heimi þessar tvær.

Við Hrund lögðum okkur þegar ég kom heim, Hrund strax orðin þreytt eftir tveggja tíma vöku. Ætluðum niður í bæ í afmæli Q bar eftir það en nenntum því svo ekki. Tókum fram 1500 bita púsl sem við eigum og föndruðum við það í nokkra tíma. Ég fór svo að sofa en Hrund blessunin skreið ekki upp í rúm fyrra um átta í morgun!!! Ég á seint eftir að venjast þessum svefnvenjum. Finnst líka hundleiðinlegt að hún eyði öllum pabbahelgum í að sofa fjandinn hafi það. Ég þarf athygli!!!

Núna er ég svöng og þreytt þar sem ég sef alltaf svo illa. Búhú, ég á svo bágt alltaf hreint. Við mamma erum að hugsa að skreppa á bókamarkaðinn í Perlunni en svo veit ég ekki hvað ég geri. Ætli Hrund vakni ekki um kvöldmatarleytið.

Ég gæti lært.

Nei, grín.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Ætluðum niður í bæ í afmæli Q bar eftir það en nenntum því svo ekki. Tókum fram 1500 bita púsl sem við eigum og föndruðum við það í nokkra tíma." ....... ég veit að hrund er að verða háöldruð en er þetta ekki einum of mikið..... gömlu ;o)

Odda Podda 1.3.2009 kl. 19:25

2 identicon

Ég er líka svona þegar Einar er í burtu. Sef með annað augað opið liggur við. Er samt aðeins að venjast þessu.

Takk annars kærlega fyrir mig á föstudaginn. Mj. gott og huggulegt. Leiðinlegt að þú skyldir ekki komast í bíó í gær.

Hlíf 2.3.2009 kl. 10:43

3 identicon

Haha... ég las fyrst "þegar einar er í sturtu" og hugsaði "Fyrr má nú aldeilis vera!" Já, svekkjó með bíó! Fínasta afþreying þessi mynd þó mér hafi fundist hún enda aðeins of vel...

Til hamingju með kjólinn og GRÆNU skóna! Hlakka til að sjá :)

Gyða 2.3.2009 kl. 12:03

4 identicon

Ég er sko ekki að grínast með það ég er ekki enn búin að jafna mig á því að hafa misst af bíói sem ég stakk sjálf upp á að fara í. Held ég sé hætt að fara í skipulagðar bíóferðir. Sprundin yndislegasta sá aumur á mér þar sem ég sat með tárin í augunum af svekkelsi og bauðst til að fara með mér að sjá myndina! Ótrúlegt. Henni sem finnst leiðinlegt í bíó.

dr 2.3.2009 kl. 13:08

5 identicon

Hahahahahah. Þegar Einar er í sturtu. Vó, sakna hans alltaf svakalega þá:)

Sætt af Sprundinni:)

Hlíf 3.3.2009 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband