Trivial

Mamma kom með ágætist líkingu áðan þegar ég hringdi í hana miður mín yfir því að enn einu sinni væri komið að því að sækja Rakel á leikskólann eftir dag sem ekki fór í neitt (nema þvott og uppvask og eitthvað álíka) en átti að vera helgaður BA-ritgerð. Ég sendi leiðbeinandanum mínum póst áðan þar sem ég sagði honum að ég léti mig hverfa af vettvangi í bókstaflegri merkingu um leið og ég tæki fram þessa BA-ritgerð. Ég er hrokkin í svo mikinn baklás og er full vanmætti og vonleysi sem aftur veldur því að mér er fyrirmunað að skrifa staf. Yfir því verð ég svo leið og reið og kalla mig aumingja og þá get ég enn síður skrifað. Ég sagði þetta nú ekki allt en eitthvað af því og bætti svo við að ég myndi líklegast ekki hafa neitt til að senda honum á morgun.

Og það hefur aldrei. ALDREI. Verið vandamál fyrir mig að skrifa.

En mamma sagði að þetta væri eiginlega orðið eins og í Trivial Persuit þegar maður er á köku og getur ómögulega svarað einhverju sem maður þó veit einungis vegna álagsins við það að vera á kökuspurningu. Ég get ekki skrifað þessa ritgerð af því að ég veit að þetta er BA-ritgerðin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

og svo ég höggvi í sama knérunn: ekki gleyma hvernig þið rúlluðu okkur hinum upp í síðasta trívíali með hverri kökunni á fætur annarri, sælar í ykkar vitundarleysi um tegund spurninganna. Málið er að byrja, þess vegna á ljóði eða málstefnuörsögu, losa um stífluna og fjandans sjálfsniðurbarninginn, þetta er bara ba-ritgerð! Hvorki upphaf né endir alls og þú hefur gengið í gegnum margt verrra og koma svo, adelante y hasta  la victoria siempre!!!

Madre loca 21.4.2009 kl. 12:25

2 identicon

Takk mamma sætasta. Annars var ég að fá eitthvað blað heim frá Háskólanum þar sem stendur að ég þurfi að skila ritgerðinni í síðasta lagi 4. maí til að útskrifast. Getum nú gleymt því. Meira bullið.

dr 21.4.2009 kl. 16:54

3 identicon

áfram þú!! :)

Gyða 21.4.2009 kl. 20:52

4 identicon

Vá hvað ég kannast við þennan hugsunarhátt. Nema bara enn verra hjá mér held ég:)

Þú þarft örugglega ekki að skila 4. maí. Bara þegar JóJó segir þér að skila. Eina sem skiptir máli er að þeir geti skilað einkunninni fyrir deadline, sem er örugglega mun seinna.

Hlíf 22.4.2009 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband