7.9.2009 | 09:08
Afkastamiklar
Við afköstuðum svo sannarlega miklu um helgina. Fórum í IKEA á laugardaginn og fundum fína kommóðu og fleira sem okkur vantaði. Fengum okkur að borða á veitingastaðnum og fórum svo í bíó á UP, yndislega skemmtileg mynd og svo falleg ástasrsaga í henni að tárin láku niður kinnarnar á mér. Enduðum í læri hjá mömmu og við mömmurnar dormuðum í sófanum eftir svefnlitla nótt. Ég nuddaði axlirnar á Hrund og Rakel fór í læknisleik með fæturna á mér. Eitthvað sem ég gerði við mömmu þegar ég var lítil og fæ að njóta núna. Rakel nuddaði tærnar og strauk með blautri 'bónil' (bómull), dásamlegt alveg hreint.
Eyddum svo þremur tímum í tiltekt þegar unginn var sofnaður. Hrund þreif inni á baði (og það var miiiiiikið að þrífa eftir að flísalagninguna og allt hitt) og ég fór í gegnum baðskápinn og hirslur inni á baði og frammi á gangi og gerði fínt. Ólýsanlega góð tilfinning að hafa fínt inni á baðherbergi aftur. Kannski tveir dagar í að við getum farið í sturtu, vantar bara fúgu og málningu. Jibbí!!!
Fórum í fjórar búðir í gær að versla ýmislegt sem okkur vanhagaði um. Og það eftir að hafa skriðið um uppi á háalofti og leitað að sæng og rúmfötum fyrir barnið sem var svo ekkert þar. Það er dótið. Ég var enn þá þreytt eftir ferðina í IKEA og tiltekt gærdagsins og fór áfram á þrjóskunni einni saman. Er samt svo ánægð með hvað við vorum duglegar. Gerðum smá pásu og borðuðum á Energia. Við Hrund fengum okkur uppáhalds pastaréttinn okkar sem hefur fylgt okkur síðan við kynntumst og Rakel fékk skyr, brauð og kakó. Föttuðum í miðri máltíð að við Hrund áttum 4 1/2 árs sambandsafmæli og ekki slæmur dagur til þess að halda upp á það. Með Rakelina okkar og að stússa fyrir kotið okkar. Eftir allar búðarferðinar drifum við okkur í sund og komum allar uppgefnar heim um kvöldið. Rakel fór beint að sofa og Hrund að dútla við smáatriði í eldhúsinu. Ótrúlegt hvað þau taka langan tíma. Það er ekki til neitt sem heitir einfalt í svona framkvæmdum ... Við horfðum svo á Miss Congeniality með hinni ofurflottu Söndru Bullock í tilefni dagsins og knúsuðumst ærlega og leið svo vel.
Núna fer þetta allt að koma hérna heima. Parketlistarnir á dagskrá í vikunni og auðvitað sturtan og svo verður bráðum hægt að þrífa rækilega og gera fínt.
Vaxtasónar og tími í skólanum á morgun. Bíð spennt.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 09:11 | Facebook
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.12.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaman að sjá þig áðan!! Það styttist heldur betur í bebe!! Ég er orðin ótrúlega spennt! Get rétt ímyndað mér hvernig ykkur líður ;) Gott að blóðþrýstingurinn er ekki verri og vonandi kemstu bráðum í sturtu mín kæra!
Kristín 8.9.2009 kl. 18:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.