27.8.2008 | 10:03
Jeij!
Ég gleymdi að skrifa í gær að ég væri að blogga í nýju tölvunni. En sumst, færslan í gær var skrifuð á gersemina.
Hárið orðið styttra og ég er bara sæt og fín. Hrund brosti hringinn þegar hún sá mig og knúsaði mig í bak og fyrir svo hún er greinilega ánægð með klippinguna.
Ahhhh. Við þrifum í gær. Eins og mér finnst erfitt og leiðinlegt að koma mér í það þá er kikkið sem fylgir því unaðslegt. Hahaha. Hrund var í stuði og ryksaug ekkert smá vel á meðan ég sá um minn hluta. Sprundin skúraði svo á meðan ég vaskaði upp og svo ákváðum við að taka síðasta grill sumarsins. Grilluðum hunangslegnar (mikið er þetta skrítið orð, er þetta skrifað svona?) svínakótilettur og íslenskar kartöflur sem ég sauð fyrst og skar í báta. Ég bjó til sósu úr sýrðum rjóma og kotasælu og svo höfðum við auðvitað sallat. Hollt og ótrúlega gott.
Annars fengum við Rakelin svakalegt hláturskast í gær. Rakel sat nýböðuð í sófanum og var að fara að horfa á 'Bubbi byggir'. Hún gat hins vegar engan veginn komið nafninu út úr sér: 'bugg bygg, nei buggi, nei, bugg ...' Ég var farin að hlæja og hún líka en var þó alveg ákveðin í að koma með þetta: 'Bugga bibbir' næstum því kallaði hún og svo öskruðum við úr hlátri. Já, hreinlega veinuðum, okkur fannst þetta svo fyndið. Hrund tók sér hlé frá skúringunum til þess að athuga hvað væri í gangi. Æ, hvað þetta var gaman. Rakelin er á svo brillíant aldri. Hún hefur nú alltaf verið skemmtileg en mér finnst þessi aldur eiginlega skemmtilegastur. 'Viltu skrúfa fyrir' sagði hún við mig í morgun. 'Ég sé ekkert' bætti hún við. Hún meinti sem sagt að ég ætti að draga frá
Við mæðgur ætlum að fara að kaupa skó á Rakel á eftir. Það verða fjórðu strigaskór sumarsins. Hún er þvílíkur skóböðull. Það passar akkúrat að kaupa eitt par í viðbót og svo þegar það er orðið götótt þá eru það bara kuldaskór. Við keyptum ótrúlega flott föt á stelpuna í Hagkaup á mánudaginn. Steingráar, útvíðar, rifflaðar flauelsbuxur og síða, aðsniðna hettupeysu með rennilás og vösum. Það vantaði bara skólatöskuna á bakið og þá hefði hún verið klár í skólann, hún var svo fullorðinsleg.
Það kom í ljós að Hrund verður bara í skólanum á mánudögum svo ég get farið í afró á miðvikudögum. Svo bauðst mamma til að koma og passa á mánudögum þegar hún gæti. Ég er svo glöð og sæl. Núna kemst ég í betra form og geri eitthvað fyrir sjálfa mig. Á miðvikudögum ætla ég að fara í gufu og jafn vel pottinn eftir tíma og virkilega dekra við mig. Jeij! Er að hugsa um að prófa einn afrótíma á eftir og hlakka ekkert smá til.
Já. ÁFRAM HLÍF. Sem heldur fyrirlestur í dag úti í Danmörku og á að sjálfsögðu eftir að standa sig með sóma eins og alltaf. Verður gaman að fá þig heim og í afró!!!
En guð minn almáttugur hvað ég verð að fara að vinna.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:08 | Facebook
Eldri færslur
- Janúar 2014
- Október 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.